Það var nóg um að vera hjá yngri flokkunum í handboltanum um helgina en 3. og 4. flokkur kvenna fór suður auk þess sem að stórt 6. flokksmót hjá bæði strákum og stelpum fór fram hér fyrir norðan
KA fær Selfoss í heimsókn í 16-liða úrslitum CocaCola-bikars karla í handbolta. Leikurinn hefst kl. 19:00 á fimmtudaginn og þarf liðið á öllum þeim stuðning að halda sem fólk getur veitt. Frítt fyrir iðkendur KA -- MÆTUM Í GULU.
Fyrir leik verður gefins heitt kakó, piparkökur, mandarínur og tvíreykt hangilæri! Það kostar 1000kr inn en það er frítt fyrir 16 ára og yngri. Við minnum á að ársmiðar gilda ekki á bikarleiki.
Klukkan 19:00 í kvöld mætast KA og Akureyri í Grill66 deild karla í handbolta. Þetta verður rosalegur slagur og ekki bara tvö stig í húfi, heldur heiðurinn í bænum. Það er frítt fyrir alla iðkendur KA á völlinn og mælum við með því að fólk mæti snemma enda má búast við fullu húsi.
Þá er tilvalið að mæta í gulu, í tilefni dagsins.